Ég sé á vef Frjálsyndra að þar eru að koma fram fjölmörg framboð til ritara þó áherslan á formanns- og varaormannskosninguna sé meiri í fréttum, skiljanlega.
Einn frambjóðandinn kastar þó upp glænýjum bolta í umræðunni - raunar mætti segja að hann "djögglaði" tveimur. Hlakka til að heyra meira af þessum hugmyndum hennar. Hún segir, í kynningu á sjálfri sér og framboði sínu:
"Mínar aðaláherslur eru einkum varða ferðaþjónustu og málefni aldraðra, sem raunar má samþætta.
Skemmtilegt þegar nýjar og ferskar hugmyndir koma fram.
Flokkur: Bloggar | 24.1.2007 | 20:36 (breytt kl. 20:40) | Facebook
Tónlistarspilari
Tenglar
Blóm og kransar
Fólk
Konur sem ég bý með
Austlendingar
Kallað yfir hálendið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- adalheidur
- andres
- annapala
- atlifannar
- audureva
- aas
- agustagust
- arnith
- polli
- bergurben
- birnamjoll
- baddahall
- lubbiklettaskald
- bet
- bingi
- bleikaeldingin
- gattin
- bryndisisfold
- bodvar
- dagga
- dabbi
- dofri
- saxi
- eirikurbergmann
- gloria
- ellasprella
- disill
- eyglohardar
- eyrun
- vinursolons
- ea
- fanney
- feministi
- finnurtg
- sifjar
- feron
- fridjon
- ulfarsson
- kvistur
- gummibraga
- gudmundurmagnusson
- gummisteingrims
- grj
- hinriksson
- hallgri
- nesirokk
- hannibal
- handsprengja
- 730bolungarvik
- heidathord
- hemba
- belle
- bolti
- kjarninn
- hlynurh
- kolgrimur
- hrafnhildurolof
- tulugaq
- hrannarb
- hrolfur
- destiny
- hoskuldur
- indahronn
- ingo
- jensgud
- hansen
- skallinn
- joninaben
- hugsadu
- killerjoe
- kolbrunb
- kiddip
- lara
- magnusdk
- matti-matt
- maggabest
- gudbjorn
- poppoli
- ljosvellingar
- bonham
- panama
- pallvil
- hux
- pollurinn
- vertinn
- puma
- rungis
- salvor
- sigmarg
- einherji
- hvalur
- sms
- snorris
- stebbifr
- stefanthor
- fletcher
- kosningar
- svenni
- swaage
- tidarandinn
- grindjani
- tommi
- truno
- ver-mordingjar
- hundshaus
- postdoc
- vikingurkr
- thorarinnh
- thordursteinngudmunds
- doddinn
- toddi
- vitinn
Athugasemdir
Ef til vill ætlar þessi frambjóðandi að beina þýskum elliheimilum á hjólum sem heimsækja landið á hverju sumri, til Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar. Jafnvel taka rúnt um Breiðdalinn.
Björgvin Valur (IP-tala skráð) 24.1.2007 kl. 22:12
Kannski stefnir hún á að láta ríkið borga gistingu fyrir aldraða á farfuglaheimilum víðs vegar um landið þannig að hjón fái að lúra saman en einstæðingar í friði.
erlahlyns.blogspot.com, 25.1.2007 kl. 00:43
Helgi, ég bið þig afsökunar á orðum mínum og efasemdum varðandi viðtal þitt Magnús Helga.
Þú fórst ákaflega vel að honum og hann naut sín til hins ítrasta.
Hafðu þökk fyrir.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 25.1.2007 kl. 00:52
Svo er líka hægt að fá ellilífeyrisþega til að kveða rímur, konurnar í upphlut og karlarnir í skinnskóm og hversdagsklæðum að fornum siðum. Það hlýtur að slá í gegn.
Ingibjörg Stefánsdóttir, 25.1.2007 kl. 14:39
er ekki tímabært að einhver blogg-nagli taki sig til og bloggi aðeins um þetta ?
vinsamlegast staðfestið móttöku:
og óskaðu afmælisbarninu til hamingju með afmælið....enda dýrasta veisla
íslandssögunnar,,,enda þögnin æpandi um þessi mál.
....hinn rússneski eigandi Chelsea náði til sín nokkrum ríkisfyrirtækjum á
sínum tíma á réttum tíma og með aðstoð vel valinna manna og er nú einn ríkasti
maður heims. Ekki fer miklum sögum af "kaupverðinu" né heldur að öðrum hafi
verið leyft að bjóða þarna í fyrirtækin....neipp, þeim var skemmtilega komið
fyrir hjá hinum "útvöldu".
Okkar útgáfa af þessum manni hlýtur að vera Ólafur Ólafsson í Samskipum sem
"gaf" milljarð í höfuðstól um helgina og renna vextirnir af honum til
mannúðarmála og líknarmála - cirka 100-150 millur árlega sem er svipað og
ónefnd veisla kostaði.
er ekki tímabært að rifja aðeins upp hvernig menn fara að því að eignast
rúmlega 100 þúsund milljónir á innan við 5 árum á íslandi en hrein eign Óla
partýkalls er vel yfir 100 þúsund milljónir?
fyrir utan búnaðarbankann.....þá var VÍS skemmtilegt dæmi....en látum fyrrum
landsbankastjóra hafa orðið:
Hann skrifar þetta í morgunblaðið 4.oktober 2006:
"Rasphúsmenn
FYRIR þremur árum ákváðu bankaráðsmenn Landsbankans hf., þeir Helgi Guðmundsson
og Kjartan Gunnarsson, að selja hinum svonefnda S-hópi hlutabréfaeign bankans í
Vátryggingafélagi Íslands, tæplega 50% eignarhlut í VÍS. Einstöku vildarvinir
fengu að fljóta með í kaupunum, þar á meðal Skinney-Þinganes á Höfn í
Hornafirði, erfðagóss Halldórs Ásgrímssonar.
Kaupverð á bréfum Landsbankans í VÍS var 6,8 milljarðar króna; sex þúsund og
átta hundruð milljónir. Réttum þremur árum síðar seldi S-hópurinn og einkavinir
þeirra þennan hlut í VÍS fyrir rúmlega 31 milljarð króna; þrjátíu og eitt
þúsund milljónir. Mismunur 24,2 milljarðar - tuttugu og fjögur þúsund og tvö
hundruð milljónir.
Sæmileg ávöxtun það, enda sá Finnur Ingólfsson um veltuna.
Þegar kaup S-hópsins og co. fóru fram hafði Landsbankinn verið einkavæddur, en
allir hlutir í honum í opinberri eign, þ.e.a.s. í eigu almennings. Það var því
í umboði ríkisstjórnar, sér í lagi bankamálaráðherrans, Valgerðar
Sverrisdóttur, sem Helgi og Kjartan seldu, en þeirra er ábyrgðin skv. lögum um
viðskiptabanka. Þau vinnubrögð kallaði einn úr Einkavæðingarnefnd, Steingrímur
Ari Arason, fráleit, sagði sig úr nefndinni; gekk brott og grét beisklega.
Það hlýtur að verða fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar eftir næstu kosningar, að
skipa opinbera rannsóknarnefnd sem fari rækilega í saumana á allri svívirðunni,
sem Einkavæðingarnefnd lét eftir sig. Auðvitað verður einkavæðing þáverandi
utanríkisráðherra, Halldórs Ásgrímssonar, á Íslenzkum aðalverktökum líka tekin
með í reikninginn.
Þegar öll kurl hafa komið til grafar er spurningin ekki sú hvort hinir ábyrgu
verði dæmdir í rasphús heldur hversu langa tukthúsvist.
Framsóknarmenn höfðu um alllanga hríð unnið hörðum höndum að því að ná undir
sig Landsbankanum. Þegar núverandi Seðlabankastjóri yfirgaf stefnu sína um
dreifða eignaraðild og heimtaði að selja bankann einkavinum sínum, ærðust
framsóknarmenn og töldu Búnaðarbankann of rýran feng. Lausn var fundin með því
að gefa þeim milljarðana í VÍS til að jafna metin og var höfð í huga aðferð
Kambránsmanna að skipta þýfinu sem jafnast."
Síðan skrifar hann 14.oktober 2006 í moggan líka þetta:
"Bankaræningjar
ÞAÐ BLASIR við öllum með augu opin að vinnubrögð hinnar svokölluðu
einkavæðingarnefndar voru samfelldur fjármálalegur sóðaskapur af verstu gerð.
Þó virðast sölur ríkisbankanna taka þar öðru fram.
ÞAÐ BLASIR við öllum með augu opin að vinnubrögð hinnar svokölluðu
einkavæðingarnefndar voru samfelldur fjármálalegur sóðaskapur af verstu gerð.
Þó virðast sölur ríkisbankanna taka þar öðru fram.
Fyrir skemmstu rakti undirritaður í stuttri klausu í Morgunblaðinu aðfarir
bankaráðsmanna Landsbanka Íslands, Helga S. Guðmundssonar og Kjartans
Gunnarssonar, við sölu á hlutabréfum bankans í Vátryggingarfélagi Íslands, en
þær athafnir voru undanfari sölu bankans. Í ljós kom, að hlutabréf Landsbankans
voru seld S-hópnum svonefnda fyrir 6,8 milljarða króna. Þessi bréf seldi
S-hópurinn 3 - þremur - árum síðar fyrir rúmleg 31 milljarð króna. Mismunur
rúmir 24 milljarðar.
Á sölu hlutabréfa Landsbankans í VÍS á sínum tíma báru aðalábyrgð þeir Helgi S.
Guðmundsson og Kjartan Gunnarsson, vafalaust að undirlagi þáverandi
bankamálaráðherra, framsóknarfrúarinnar frá Lómatjörn. Ærin ábyrgð hlýtur það
að teljast, enda tukthússök.
En sagan var ekki hálfsögð. Það kemur í ljós við kaup S-hópsins á FL-Group að
einn af aðalmönnum S-hópsins reynist vera hinn sami Helgi S. Bankaráðsmaðurinn
hefir sem sagt gefið sjálfum sér milljarðana við svokallaða sölu VÍS-bréfanna
til S-hópsins.
Það er ennfremur bókað að Kjartan Gunnarsson á vænan hlut í Landsbanka Íslands
og hefir sem bankaráðsmaður í fyrrum Landsbanka ráðið miklu um það verðlag, sem
hann sjálfur naut við kaup sín í nýja Landsbankanum.
Það er eftir öðru að Helgi þessi S skuli vera formaður stjórnar Seðlabanka
Íslands - eða kannski við hæfi.
Þessi dæmi sýna ljóslega hverskonar framsóknar-forarvilpu ríkisstjórnarmenn eru
sokknir í, enda munu þeir aldrei leyfa opinbera rannsókn á málavöxtum meðan
þeir sitja á valdastólum.
Eru það kannski þessir kónar sem nýi forsætisráðherrann á við þegar hann segir
í alþingi á dögunum: ,,Ég missi ekki svefn yfir því að einhverjir aðilar hafi
hagnast á viðskiptum."
Á hinu kynni að verða stutt bið að einhverjir af bankaræningjunum yrðu andvaka.
Höfundur er fv. form. Frjálslynda flokksins."
Síðan var Icelandair tekið yfir...þeir komnir í FL group og Straum Burðaráss
o.fl. skemmtilegt....
Er það ekki einsdæmi í hinum vestræna heimi að sjálfur viðskiptaráðherra hætti
störfum og taki þátt í einkavæðingu sinnar eigin ríkisstjórnar - og nái á innan
við 5 árum nokkur hundruð þúsund milljónum til sinna manna og stýri núna einum
öflugasta fjárfestingarhóp landsins ???
Er ekki timabært að rifja aðeins upp hverjir tilheyra þessum hóp manna sem
undir forystu fyrrum viðskiptaráðherra Íslands eru orðnir meðal auðugustu manna
íslands....og það á vel innan við 5 árum ???
"Island er best í heimi.......við eigum öll skilið að fá Thule !"
Kv.
JS
_______________________________
JS (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 16:10
Sæll Helgi minn.
Mér fannst þú vera mjög ókurteis við aldraða í þættinum í gærkvöldi.
Það var þér til vansa.
Kveðja Kaldbakur.
Viðar Steinarsson (IP-tala skráð) 26.1.2007 kl. 14:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.